| Um okkur |
|
|
|
Miðstöð fyrir millilandagreiðslur varð til sem nauðsynleg forsenda beitingu löggjafar Evrópusambandsins og alþjóðlegra samninga um félagslegt öryggi á sviði almannatrygginga. Miðstöð fyrir millilandagreiðslur er félag lögpersóna (sjúkratryggingastofnana). Stofnendur og meðlimar miðstöðvarinnar eru allar sjúkratryggingastofnanir sem starfa í Tékklandi. Miðstöð fyrir millilandagreiðslur starfar frá 1. janúar 2002 með heimild Heilbrigðisráðuneytis Tékklands sem tengiliður á sviði sjúkratrygginga Tékkneska lýðveldisins og tryggir einkum eftirfarandi starfsemi: Upplýsingaþjónusta Við söfnum og veitum allar upplýsingar um beitingu löggjafar Evrópusambandsins og alþjóðlegra samninga á sviði sjúkratrygginga. Gegnum netsíður, upplýsingaefni, prentað efni, síma- og tölvupóststjónustu veitum við bæði tékkneskum og erlendum tryggingatökum upplýsingar um réttindi þeirra sem þeir öðlast á grunni alþjóðlegrar löggjafar og einnig um formleg skref sem nauðsynleg eru fyrir beitingu þessara réttinda. Þessa upplýsingaþjónustu veitum við einnig tékkneskum og erlendum stofnunum og vinnuveitendum. Miðstöðinni ber skylda til að skrá tölfræðilegar staðreyndir sem þjóna ríkisstofnunum og sjúkratryggingastofnunum svo bæta megi skipulag væntanlegara tekna og útgjalda sem tengdar eru framkvæmd samninganna. Ráðgjöf Við tryggjum ráðgjöf fyrir
Laga-, tækni- og rekstrarmál, sem varða tilkall til sjúkratryggingabóta úr almannatryggingum við dvöl tékkneskra tryggingataka erlendis eða við dvöl erlendra tryggingataka í Tékkneska lýðveldinu, varðar einkum:
Kostnaðaruppgjör Kostnaður við bætur sem tékkneskir tryggingatakar hafa fengið í ríkjum Evrópusambandsins og í samningsríkjum, eins og kostnaður við bætur sem greiddar voru tryggingatökum úr ríkjum Evrópusambandsins og samningsríkjum við Tékkneska lýðveldið, er gerður upp með milligöngu Miðstöðvar fyrir millilandagreiðslur. Um skilyrði uppgjörs þessa kostnaðar semur Miðstöðin við viðkomandi tengilið í tilteknu samningsríki. Samningar Miðstöð fyrir millilandagreiðslur undirritar samninga við erlenda tengiliði sem einfalda hagkvæma og virka framkvæmd lagaákvæða Evrópusambandsins sem og almenna mllilandasamninga. Þeir taka fyrir til dæmis tíðni gagnkvæmra greiðslna, samninga um fyrirframgreiðslur fyrir veitta þjónustu og önnur hagkvæm mál. Afgreiðsluhjálp Miðstöð fyrir millilandagreiðslur veitir bæði tékkneskum og erlendum tryggingatökum, sjúkratryggingaberum, sjúkrastofnunum og vinnuveitendum afgreiðsluhjálp í ákveðnum tilfellum. Samstarf við ríkisaðila Miðstöð fyrir millilandagreiðslur tekur í samstarfi við Heilbrigðisráðuneytið og Félags- og atvinnumálaráðuneytið þátt í undirbúningi nýrra millilandasamninga um almannatryggingar og rekstrarsamkomulaga er ná til þessa samninga. Miðstöðin tekur í samstarfi við ríkisstofnanir einnig fullan þátt í undirbúningi nýrra viðmiða í hinu evrópska réttarkerfi á þessu sviði. Miðstöðin vinnur með öðrum aðilum að undirbúningi lagabreytinga varðandi sjúkratryggingar sem snerta önnur lönd. Miðstöðin starfar saman með tékkneskri yfirstjórn almannatrygginga við veitingu undantekninga frá tékkneskri lögsögu. Samstarf við evrópska aðila Miðstöðin tekur virkan þátt í starfsemi vinnuhópa Rekstrarráðsins (Audit Board, Technical Commission, vinnuhópar). Alla ofangreinda starfsemi tryggir Miðstöðin frá 1. maí 2004 gagnvart 25 ríkjum Evrópusambandsins, þremur ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins og þremur samningsríkjum. |
|
| Aktualizováno ( Středa, 11 leden 2012 10:45 ) |