| Tilkall til heilsuþjónustu við tímabundna dvöl í Tékklandi (námsmenn, ferðamenn) |
|
|
|
Upplýsingar um lækna á dvalarstað sem eru samningsaðilar sjúkratryggingastofnana og aðrar upplýsingar sem varða heilsuþjónustu þegar dvalið er tímabundið í Tékkneska lýðveldinu er hægt að nálgast í útibúm sjúkratryggingastofnana. Listi yfir sjúkratryggingastofnanir og heimilisföng þeirra finnst í viðauka þessa upplýsingabæklings. Frekari upplýsinga getið þið einnig leitað hjá Miðstöð fyrir millilandagreiðslu á netfangi Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , í símanúmeri 00420- 2- 34 46 (20 52), (20 53), (20 43) eða í bréfsímanúmeri 222 734 951. Ef líf eða heilsa einhvers er í bráðri hættu, hringið í neyðarnúmer. Í hverskyns hættu er hægt að hringja í númer 112 (samskipti á erlendum málum). Þið getið einnig notað tékkneskt neyðarlínunúmer 155 (samkipti oftast eingöngu á tékknesku). LÆKNISÞJÓNUSTA Almennar upplýsingar og hvernig maður getur nálgast læknismeðferð Til að fá meðferð samkvæmt ákvæðum evrópsks réttar, er mikilvægt að hafa samband við heilbrigðisaðila (lækni, tannlækni, sjúkrahús), sem hefur undirritað samning við tékkneskt sjúkratryggingakerfi. Meirihluti heilbrigðisstofnana hefur slíkan samning. Við meðferð framvísið lækni Evrópsku sjúkratryggingavottorði, eða Varasjúkratryggingavottorði. Ef ekkert af þessum vottorðum er framvísað, getur læknir beðið um staðgreiðslu. Til að tékknesk sjúkratryggingastofnun greiði kostnað við meðferðina, þarf læknirinn að skoða Evrópskt sjúkratryggingavottorð ykkar, eða Varsjúkratryggingavottorð. Hann notar upplýsingar úr þessum skjölum og skrifar þá í sérstakt tékkneskt skjal, svokallað „Vottorð um tilkall“. Læknirinn ætti líka að fara yfir upplýsingar um ykkur í persónuskilríki sem þið framvísið (vegabréf, ökuskírteini). Læknirinn biður ykkur um staðfestingu á áætlaðri lengd dvalar í Tékklandi og lætur ykkur velja eina úr þeim sjúkratryggingastofnunum sem hann hefur samning við. Með undirskrift ofangreinds „Vottorðs um tilkall“ staðfestið þið val ykkar og áætlaða lengd dvalar. Með undirskrift staðfestið þið einnig að þið hafið ekki ferðast til Tékklands eingöngu til að neyta læknisþjónustu hér. Ef læknirinn gefur út lyfjaseðil eða meðmæli með viðbótarskoðun fyrir ykkur, ætti hann að láta ykkur hafa samsvarandi magn af afritum „Vottorðs um tilkall“. Þessi afrit eru svo framvísuð í apóteki eða hjá lækni sem framkvæmir viðbótarskoðun. Ef þið ferðist til Tékklands til að neyta læknisþjónustu hér, biðjið viðkomandi tryggingastofnun á Íslandi um samþykki (skjal E112). Þetta skjal ætti að vera framvísað tékkneskri sjúkratryggingastofnun sem þið veljið áður en læknismeðferð hefst. Án skjals E112 getur tékknesk sjúkratryggingastofnun ekki gengist við kostnaði við læknismeðferð í Tékklandi. Ef þið af einhverri ástæðu getið ekki framvísað neinum af ofangreindum skjölum í Tékklandi, getið þið haft samband við tékkneska tryggingastofnun af ykkar vali og beðið hana um milligöngu við sendingu slíks skjalar. Beinn aðgangur að lækni Ef þörf er á læknismeðferð þegar dvalið er tímabundið í Tékklandi, geta erlendir tryggingahafar sem eru með , Evrópskt sjúkratryggingavottorð eða Varasjúkratryggingavottorð haft samband beint við lækni (tannlækni, sjúkrahús). Möguleiki á skráningu fyrirfram Ef þið dveljið í Tékklandi til lengri tíma, t.d. sem námsmaður eða við starfsdvöl, hafið þið möguleika á að velja sjúkratryggingastofnun, hafa samband við hana og biðja um skráningu. Sem staðfestingu fáið þið „Vottorð um skráningu“. Þetta vottorð getið þið framvísað lækni sem þið farið til. Framvísun vottorðsins getur auðveldað samskipti við lækni. Tannlæknaþjónusta Grunnmeðferðir hjá tannlækni eru greiddar af sjúkratryggingakerfinu. Sjúklingurinn hefur hlutdeild í meðferðum og efnum sem eru í hærri gæðaflokk en venjulegur staðall og greiðir fyrir þau eftir gerð þeirra. Sérþjónusta Ef þörf er á meðferð eða skoðun hjá sérfræðingi, gefur læknirinn sem sjúklingur er skráður hjá, út meðmæli fyrir sérfræðing. Sjúkrahúsvist Í nauðsynlegum tilvikum getið þið farið með EHIC, eða með Varavottorð sem tímabundið getur komið í stað fyrir Evrópska skírteinið, beint á sjúkrahús. Í öðrum tilvikum gefur læknirinn út meðmæli til sjúkrahúsvistar. Ef þið eruð lögð inn á sjúkrahús og eruð ekki með ekki EHIC, eða Vottorð sem tímabundið getur komið í stað fyrir EHIC, látið vita á sjúkrahúsinu hjá hvaða tryggingastofnun þið eruð tryggð. Biðjið sjúkrahúsið um útvegun ofangreinds skjals. Flutningur á sjúkrahús Flutningur með bifreið sjúkraþjónustu er greiddur af sjúkratryggingakerfinu. Til að tékknesk sjúkratryggingastofnun greiði fyrir flutninginn, er nauðsynlegt að framvísa Evrópska sjúkratryggingaskírteinið, eða Vottorð sem tímabundið kemur í stað Evrópska skírteinisins . Lyf Læknir sem hefur ákveðið að lyf skyldu vera hluti af meðferðinni, gefur út lyfjaseðil. Hann ætti einnig að leggja til afrit af Vottorði um tilkall. Lyf eru sótt í apótek. Sum lyf eru greidd af sjúkratryggingum, sum lyf eru greidd að hluta til og enn önnur verður maður að greiða að fullu sjálfur. Greiðsla kostnaðar í Tékklandi Ef lagt er fram Evrópska sjúkratryggingaskírteinið, eða Vottorð sem tímabundið kemur í stað Evrópska skírteinisins , er meðferðakostnaður greiddur af tékkneskri sjúkratryggingastofnun sem sjúklingur hefur valið sér. Ef þið hafið þurft að staðgreiða fyrir læknismeðferð (t.d. vegna þess að þið voruð ekki með viðkomandi skjal), getur tékknesk sjúkratryggingastofnun ekki greitt til baka áður en þið farið úr Tékklandi. Sérhverjum tryggingahafa eða löggiltum fultrúa hans ber að greiða þjónustuveitanda gjald fyrir veitta læknismeðferð.Heilsuþjónustugjöld skiptast í þrjú stig: 1. 30 CZK - fyrir klíníska skoðun hjá heimilislækni, barnalækni, kvensjúkdómalækni, tannlækni eða sérfæðingi - fyrir öll lyf sem hið almenna heilsutryggingakerfi greiðir fyrir að fullu eða að hluta til, eða fyrir hverskonar meðöl eða hollustufæði gegn lyfseðli, án tillits til þess hversu mikið magn lyfseðill fyrirskrifar. 2. 60 CZK 3. 90 CZK Lögin kveða einnig á um undantekningar frá gjaldskyldu, t.d. ef um er að ræða forvarnarskoðun, blóðskilun, langtímameðferð, rannsókn eða sjúkdómsgreiningu sem heimilislæknir biður um, ef jafnframt fer ekki fram klínísk skoðun, meðferð skipuð af rétti, skyldubundin meðferð á smitnæmum sjúkdómum o.s.frv. Heildarhámarksupphæð 5000 CZK Ef árleg heildarupphæð gjalda sem tryggingarhafinn (eða löggiltur fulltrúi hans) hefur borgað fer yfir 5000 CZK fyrir einn sjúkling, skal sjúkratryggingastofnun greiða tryggingahafanum (eða löggiltum fulltrúa hans) mismuninn milli heildar- og hámarksupphæðarinnar. Útborgun fer fram innan 60 daga frá lokun þess ársfjórðungs sem um ræðir.Inn í heildarupphæðina reiknast eftirfarandi gjöld: gjald 30 CZK fyrir læknisþjónustu og mismunur milli verðs lyfja og hollustufæðis sem fyrirskrifuð hafa verið í Tékkneska lýðveldinu og hlutfalls verðs þess sem tryggingastofnanir greiða fyrir. Mismunurinn reiknast einungis miðað við ódýrustu lyf og hollustufæði sem í boði eru á markaðinum og innihalda jafn mikið magn af virkum efnum og sem neytt skal á sama hátt.Æski tryggingahafi (eða löggiltur fulltrúi hans) þess, er þeim aðila sem heilsuþjónustu veitir skylt að gefa út staðfestingu á greiðslu gjalda fyrir hana.Himnuskiljun Ef þið þurfið að fara í himnuskiljun í Tékklandi, hafið vinsamlegast fyrst samband við einhverja af þeim miðstöðvum sem þið finnið á viðbættum lista.
|
|
| Síðast uppfært ( Saturday, 24 May 2008 11:07 ) |