Tilkall til heilsuþjónustu fyrir ellilífeyrisþega Tisk Email

Ellilífeyrisþegar sem búa í öðru ríki en því sem veitir þeim ellilífeyri

Ellilífeyrisþegar sem búa í öðru ríki en því sem veitir þeim ellilífeyri hafa tilkall til að neyta að fullu  heilsuþjónustu í því landi  er veitir þeim búsetu á kostnað almannatryggingastofnunar þess lands sem veitir þeim ellilífeyri. Tengiliður fyrir greiðslu kostnaðar vegna heilsuþjónustu verður þá um stundarsakir almenn sjúkratryggingastofnun í því landi þar sem ellilífeyrisþeginn er búsettur (ef þær eru fleiri, má hann velja úr þeim af frjálsum vilja). En það gildir einungis að því skilyrði gefnu, að ellilífeyrisþegi fái ekki samtímis greiddan ellilífeyri í því landi þar sem hann er búsettur. Þá mundi hann falla undir lögsögu búsetulandsins og yrði líka tryggður þar. 

Dæmi A: Ellilífeyrisþegi sem alla ævi hefur búið og unnið á Íslandi, ákveður að búa í Tékkneska lýðveldinu. Samt fellur hann áfram undir íslensk lagaákvæði og verður tryggður á Íslandi. Í Tékklandi mun hann hafa tilkall til fullrar heilsuþjónustu eins og allir  tékkeskir tryggingatakar en aðeins með þeim mun, að heilsugæslukostnaður verður greiddur af íslenska almannatryggingakerfinu, nefnilega Tryggingastofnun ríkisins (TR). Sem milligönguliður við greiðslu milli Tryggingastofnunar ríkisins og tékkneska læknisins, mun ellilífeyrisþeganum þjóna sjúkratryggingastofnun að hans vali sem hann verður að skrá sig sjálfur hjá.  Við heimsókn til Íslands eða hvers annars EU eða EEA lands sem er (Noregs, Lichtensteins), hefur ellilífeyrisþegi tilkall til nauðsynlegrar heilsuþjónustu. 

Svo ellilífeyrisþegi megi gera tillkall til fullrar heilsuþjónustu í Tékkneska lýðveldinu, verður hann fyrst að sækja skjal E121 hjá lögmætri stofnun, þ.e.a.s. Tryggingastofnun ríkisins. Þetta skjal framvísar hann í tékkneskri heilsutryggingastofnun við skráningu. 

Dæmi B: Ellilífeyrisþegi hefur á æfinni starfað bæði á Íslandi og í Tékkneska lýðveldinu. Þess vegna fær hann bæði tékkneskan og íslenskan ellilífeyri. Hann er búsettur á Íslandi og er einnig tryggður þar. Hann ákveður að flytja til Tékklands. Vegna þess að hann fær ellilífeyri frá báðum löndum, ræður búsettulandið, Tékkland, því undir hvaða lagaákvæði hann fellur og hvaða tryggingastofnun hann tilheyrir. Hann verður þá tékkneskur tryggingaþegi.

 

Počet návštěvníků

Právě připojeni - hostů: 11 
Čeština (Česká republika)Danish(DK)Deutsch (Deutschland)Estonian (Estonia)English (United Kingdom)Espanol (Spain)Finnish (Suomi)French (Fr)Greek (Greece)Magyar (Hungary)Icelandic (IS)Italian (Italy)Latvian (Latvia)Lithuanian (Lithuania)Norsk bokmål (Norway)Nederlands (NL-BE)Polski (Poland)Português (pt-PT)Slovenčina (Slovenská Republika)Slovene (Slovenia)Svenska (Sverige)